Algengar spurningar
Pantanir
Ég fékk ekki matinn minn, hvað get ég gert?
Best er að hringja strax í 519-2939 ef afhending mistekst en þá getum við brugðist hratt við. Við leysum málið hratt og örugglega.
Ég gleymdi að panta
Þú getur sent okkur línu á maul@maul.is. Við förum yfir sein pantanir eftir hádegi og því getum við ekki tekið við pöntunum samdægurs þar sem fyrirvarinn er of stuttur. Við mælum svo með þú farir í stillingar og kveikir á áminningum, bæði í tölvupósti og SMS en við sendum þér áminningu alla fimmtudaga og föstudaga.
Hvar get ég séð pöntunina mína?
Þú smellir á flipann „þínar pantanir“. Þar finnur þú lista yfir allar þínar pantanir, skipt eftir vikum. Hægt er að fletta á milli vikna með örvahnöppunum efst á síðunni.
Get ég afpantað matinn minn?
Já! Þú getur afpantað til klukkan 16:00 deginum áður. Til að afpanta velur þú „þínar pantanir“ og smellir á "Afpanta" undir réttinum sem þú villt afpanta.
Get ég breytt pöntuninni minni?
Já, þú getur breytt pöntuninni á meðan opið er fyrir pantanir. Ef búið er að loka á pantanir getur þú athugað að senda okkur tölvupóst á maul@maul.is - athugið þó opnunartíma þjónustuvers.
Hvað gerir þessi 'Umsögn' takki?
Þetta er umsagnakerfið okkar. Þú getur deilt með okkur þinni upplifun á Maulinu og sagt okkur hvað þér fannst um matinn. Við vonum að þú og vinnufélagar þínir notið þetta sem oftast, þar sem þessar upplýsingar hjálpa okkur mikið við að velja rétti á matseðilinn.
Get ég breytt afhendingarstað?
Ef vinnustaðurinn þinn er með fleiri en einn afhendingarstað geturðu skipt á milli þeirra eftir að þú skráir þig inn. Þú finnur þann möguleika undir „Stillingar“.
Athugaðu að aðeins er hægt að gera þessa breytingu fram til kl. 16:00 daginn fyrir afhendingu. Ef þú vilt breyta sjálfgefnum afhendingarstað, vinsamlegast hafðu samband við okkur á maul@maul.is og við aðstoðum þig.
Við erum lítið fyrirtæki og sendingarkostnaður er tiltölulega hár
Við hvetjum minni fyrirtæki í sama húsnæði til að taka sig saman. Við getum gefið afslátt af sendingargjaldinu fyrir nágranna. Endilega sendið okkur línu á maul@maul.is og við gerum ykkur tilboð.
Maulseðill
Ég er með hugmynd að veitingastað
Frábært! Sendu okkur tölvupóst á maul@maul.is og við sjáum hvort við getum skipulagt samstarf.
Get ég fengið öðruvísi Maulseðil en vinnufélagarnir?
Ef þú ert mikill matgæðingur eða elskar að vera með valkvíða getur þú sannfært vinnufélagana þína að þið sem vinnustaður færið ykkur yfir á úrvalspakkann. Þar getur hver og einn valið að vera á matseðli með áherslu á fisk, létta rétti, glúteinlaust, lágkolvetna, grænmetis, vegan eða kjötrétti.
Afhverju stendur 'Maulseðill ekki tilbúinn'?
Það er af því að við höfum ekki opnað fyrir pantanir! Við birtum nýjan Maulseðil kl. 10:15 á fimmtudagsmorgnum. Þú getur verið viss um að missa ekki af því með því að kveikja á áminningum undir „stillingar“.
Hvernig breyti ég úrvalsseðlinum mínum?
Þú getur breytt Maulseðlinum þínum með því að velja hvað þú vilt leggja áherslu á. Valmyndin er staðsett fyrir ofan Maulseðilinn á matseðlasíðunni. Athugaðu að þetta virkar aðeins ef vinnustaðurinn þinn er með áskrift að úrvalspakkanum.
Hvernig uppfæri ég val á mataræði?
Þú smellir á „stillingar" og velur á milli valkosta í felliglugganum merktum mataræði. Mundu að vista stillingarnar þínar þegar þú hefur valið.
Hver er munurinn á 'Maulseðli' og 'mataræði'?
Þú getur skipt á milli mismunandi áhersla á Maulseðlinum með því að velja mismunandi kosti í felliglugga á matseðlasíðunni. Þú getur enn stillt mataræði þitt í stillingum. Sú stilling tryggir að réttir sem ekki falla að mataræðinu verði síaðir frá.
Hvers vegna get ég ekki bara séð alla rétti sem eru í boði?
Vegna þess að við þurfum að hafa stjórn á því hversu stórar pantanir veitingastaðir okkar fá. Við sendum yfir 1800 rétti á hverjum degi og þurfum að gæta þess vel að veitingastaðirnir okkar fái pantanir sem þeir ráða við.
Auðkenning
Hvaða upplýsingar þarf svo ég geti nýskráð mig?
Þú þarft að setja inn nafn, netfang og lykilorð. Athugaðu að lykilorðið þarf að vera lágmark átta stafir.
Get ég breytt um netfang?
Í bili geturðu ekki breytt netfanginu þínu sjálf/ur, en þú getur haft samband við okkur á maul@maul.is og við græjum það fyrir þig. Þú getur þó nýskráð þig aftur með nýju vinnunetfangi.
Ég er ekki með netfang hjá vinnustaðnum mínum
Sendu okkur tölvupóst á maul@maul.is sem inniheldur nafn þitt, fyrirtæki og netfangið sem þú vilt nota. Við munum bæta þér við kerfið okkar.
Ég gleymdi lykilorðinu mínu
Þú getur endurstillt lykilorðið þitt. Þú einfaldlega smellir á „endursetja lykilorð“ hnappinn á innskráningarsíðunni. Þá færðu sendan tölvupóst með leiðbeiningum á netfangið þitt. Athugaðu að pósturinn gæti endað í ruslinu eða „spam“ möppunni.
Ég get ekki skráð mig inn
Það gætu verið margar ástæður fyrir því, en það mun birtast blár borði efst á skjánum sem segir þér hvers konar villa hefur komið upp. Endilega sendu okkur póst á maul@maul.is ef þú þarft aðstoð.
Ég fékk ekki staðfestingarpóstinn þegar ég nýskráði mig
Gakktu úr skugga um að þú skoðir rusl- og ruslmöppurnar þínar. Stundum endar tölvupósturinn þar. Ef þú ert enn viss um að þú hafir ekki fengið staðfestingarkóðann vinsamlegast hafðu samband við okkur á maul@maul.is
Nýskráning virkar ekki
Það gætu verið margar ástæður fyrir því, en það mun birtast blár borði efst á skjánum sem segir þér hvers konar villa hefur komið upp. Endilega sendu okkur póst á maul@maul.is svo að við getum leyst vandamálið.
Almennt
Hvernig virkar Maul?
Með hjálp Mauls geta vinnustaðir fengið sendan til sín ljúffengan og fjölbreyttan mat með lágmarks fyrirhöfn frá yfir 75 veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu. Hvern fimmtudag birtum við glænýjan Maulseðil með nokkrum réttum frá mismunandi veitingastöðum fyrir hvern dag. Hver starfsmaður pantar fyrir sig fyrir vikuna og við mætum svo með rjúkandi heitan mat til ykkar.
Hvað kostar hver máltíð?
Þetta er frekar einfalt! Við erum með tvö verð fyrir alla réttina okkar. Allir réttir á hefðbundna Maulseðlinum kosta 2.995 kr. og allir réttir úrvalspakkanum kosta 3.375 kr. Sjá verð á útkeyrslu hér fyrir neðan.
Hver er sendingarkostnaðurinn?
Það fer eftir því hversu mörg panta. 1-12 pantanir 5.200kr. | 13 - 22 pantanir 2.600kr. | 23+ pantanir 0kr. Við veitum fyrirtækjum sem fá afhent á sama stað 50% afslátt af sendingargjaldinu og veitum góða afslætti þegar við erum í nágreninu. Hafið endilega samband og við gerum það sem við getum til að lágmarka sendingarkostnaðinn.
Hver er lágmarkspöntunin?
Það er engin lágmarkspöntun :)
Hvenær kemur maturinn?
Það má búast við okkur frá klukkan 11:30 til 12:00 fyrir hádegismatinn og frá klukkan 18:00 til 18:30 fyrir kvöldmat. Um helgar má búast við því að hádegismaturinn komi frá klukkan 12:00 til 12:30 og kvöldmatur frá klukkan 18:00 til 18:30.
Vinnustaðurinn minn vill byrja að panta frá Maul, hvar skráum við okkur?
Þú getur skráð vinnustaðinn þinn í viðskipti hér: www.maul.is/verda-maularar/ og fylla út formið. Við sendum ykkur póst með leiðbeiningum um næstu skref þegar við höfum skráð ykkur í Maulið.
Hvenær panta ég?
Nýr matseðill fer í loftið á hverjum fimmtudegi kl. 10:15. Opið er fyrir pantanir til loka vinnudags á föstudegi.
Mér fannst maturinn ekki góður! Hvað get ég gert?
Við mælum með að þú notir umsagnarkerfið á pantanasíðunni þinni. Ábendingar sem sendar eru berast veitingastöðunum nafnlaust. Þau hafa svo samband við okkur ef þeir vilja bregðast við og við komum svörunum áfram.
Þegar matseðlar eru útbúnir er tekið mið af umsögnum og valið inn á seðilinn það sem hefur reynst vel. Við leggjum okkur fram við að halda viðskiptavinum okkar söddum og sælum og skoðum hverja ábendingu fyrir sig með það markmiði.
Býður Maul upp á kvöldmat og/eða mat um helgar?
Við bjóðum upp á hádegis- og kvöldmáltíðir alla daga, bæði á virkum dögum og um helgar. Kvöld- og helgarmatur eru örlítið dýrari en hádegismaturinn en sendingargjaldið er það sama.
Hvað kostar kvöldmatur og matur um helgar?
Kvöldmatur á virkum dögum og helgarmatur um helgar eru á 3.100kr. en kvöldmatur um helgi kostar 3.550kr. Sendingargjaldið er það sama og á virkum dögum.
Hvernig slekk ég á áminningum?
Á stillingasíðunni þinni getur þú valið um að kveikja eða slökkva á áminningum.
Hvenær lokar þjónustuverið?
Símaþjónustan okkar lokar klukkan 16:00 en þú getur alltaf sent okkur tölvupóst á maul@maul.is og við munum svara við fyrsta tækifæri. Skrifstofutímar eru þó aðeins á virkum dögum milli 9:00 og 16:00 og við getum ekki ábyrgst svörun utan þess tíma.
Hvað er þessi sárabótamatur sem þið talið um?
Ef máltíðin þín berst ekki, vinsamlegast láttu okkur vita með því að hringja í okkur í síma 519-2939. Ef við höfum ekki tök á að senda til þín aðra máltíð getum við boðið þér að fara á einn af samstarfs-veitingastöðum okkar í þínu nágrenni og velja þér máltíð og drykk á kostnað Mauls. Þú getur séð lista yfir veitingastaðina sem bjóða upp á sárabótamat hér: https://www.maul.is/veitingastadir/sarabotamatur
Sendið þið einungis á höfuðborgarsvæðinu?
Já, eins og er sendum við einungis út mat á höfuðborgarsvæðinu.
Ef þú finnur ekki svar við spurningunni þinni hér að ofan þá geturðu alltaf sent okkur póst eða hringt og við gerum okkar besta til að leysa vandann!
